Drykkjaþjónusta fyrir þinn viðburð

FJÖR barþjónusta

Kokteilar, vín og þjónusta fyrir öll tilefni

Fáguð barþjónusta

Við sjáum um að skapa vandaða drykkjarupplifun þar sem fagmennska, gæði og persónuleg þjónusta fara saman. Hvort sem um er að ræða einkasamkvæmi, brúðkaup eða fyrirtækjaviðburð sér teymið okkar um allt sem viðkemur barnum af nákvæmni og alúð.

Með áralanga reynslu af vínþjónustu, kokteilagerð og veitingaþjónustu leggjum við metnað í að hver viðburður gangi hnökralaust fyrir sig. Gestirnir njóta augnabliksins á meðan við sjáum um smáatriðin.

Við bjóðum upp á sérhannaða kokteila, vandað vínval og drykkjaparanir sem falla að tilefninu. Jafnframt sjáum við um allt sem þarf til fullkominnar barþjónustu – glös, ís, blöndunarefni, búnað og faglega framkvæmd frá upphafi til enda.

Markmið okkar er einfalt: að veita framúrskarandi þjónustu og skapa notalega upplifun fyrir hvert tilefni.

Hvernig virkar bókunarferlið?

skref 1

Veldu þjónustupakka eða óskaðu eftir sérsniðnu tilboði

Segðu okkur frá viðburðinum þínum í gegnum bókunarsíðuna og við setjum saman lausn sem hentar þínum þörfum. Þú getur einnig valið úr þjónustupökkunum okkar sem innihalda meðal annars kokteilabar, vínþjónustu, smakkanir og sérvaldar drykkjaparanir.

skref 2

Staðfesting viðburðar

Þegar við höfum farið yfir allar upplýsingar sendum við staðfestingu ásamt lokatilboði. Viðburðurinn telst staðfestur þegar 50% staðfestingargjald hefur verið greitt.

skref 3

Á degi viðburðarins

Teymið okkar mætir 1–2 klukkustundum áður en viðburður hefst til að undirbúa allt svo framkvæmdin verði hnökralaus.

Á meðan á viðburðinum stendur sjáum við um faglega og persónulega þjónustu, hvort sem um er að ræða kokteila, vínþjónustu eða drykkjaparanir sem eru sérsniðnar að gestum og tilefni.

Að viðburði loknum göngum við frá barnum af sömu fagmennsku og yfirvegun og einkenna þjónustu okkar, þannig að þú getir notið kvöldsins til enda.

Við hlökkum til að heyra frá þér.